fimmtudagur, september 28, 2006

Digranesprestur fermir ekki fríkirkjusálir

Enda segir í Biblíunni: "Leyfið börnunum að koma til mín og bannið þeim það ekki nema þau séu í vitlausu trúfélagi."
Í tilefni af forsíðu Blaðsins í dag

11 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta hefur alltaf verið uppáhaldið mitt í BÓKINNI BÓKANNA. Vík burtu frá mér, Fríkirkjupakk!

En að öðru; menn og konur bíða nú í ofvæni eftir n.k. söguskýringu, sagnfræði máske, um útvarpsbrölt þitt og Steins og Bobba, á síðunni hans Völundar á Nýja-Sjálandi. Þú ert auðvitað ekki skyldugur til þessa en mikið væri gaman að fá þetta á hreint - þetta er nefnilega dálítið merkilegt. Kv, Svanur Már Snorrason

Brynja Björk sagði...

Þetta er náttúrulega súrrealískt frá upphafi til enda.

Nafnlaus sagði...

Gamla valdabaráttan í kirkjunni kannski að blossa upp?

Hnakkus sagði...

Þetta er fyndið rugl en kemur lítið á óvart. Trúarbrögð eru fyrst og fremst valdastrúktúr. Þessvegna er ekkert skrýtið að blessaðir prestarnir vilji ekki rugla sínum lömbum saman við lömbin í næstu rétt. Kannski þeir ættu bara að taka upp eyrnamerkingar?

Hjörtur Howser sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Hjörtur Howser sagði...

Einu sinni varð Halla ("litla" bróður Ladda) á orði, skrækum grínrómi, þegar umræðan snérist um hver væri hvað og hvað væri hvurs:"Og hver fær stefgjöldin!?!".
Kannski er þetta spurning um einhver slík gjöld sem innheimt verða á efsta degi.
Hvað veit maður um þau reikningsskil.

Fríkirkjan í Hafnarfirði hefur stundað, um nokkurt skeið, að "yfirbjóða" í fermingarbörn þjóðkirkjunnar. Þetta er gert með ýmsum gylliboðum um félagstarf, útilegur o.þ.h. Pirrar prestana við lækinn óheyrilega mikið hvert vor.

Annars er þetta trúfélagabrölt alltaf jafn grátbroslegt.
Bendi áhugasömum á vantru.is Bigga Bald og félaga.

Hjörtur Howser sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Hjörtur Howser sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Hjörtur Howser sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Davíð Þór sagði...

Knýjið á og fyrir yður mun upplokið verða ef þér eruð í Þjóðkirkjunni.

Nafnlaus sagði...

Ég held að presturinn við Lækinn sé sjálfur fullfær um að flæma fermingarbörnin frá sér...