mánudagur, janúar 10, 2011

Siðferðilegt yfirlæti

Góðmennska, hjartahlýja og náungakærleikur eru ekki skrásett vörumerki sem kristindómurinn á einkarétt á. Allt þetta einkenndi gott fólk löngu áður en kristindómurinn kom til sögunnar og einkennir enn allt gott fólk, óháð því hvaða trúarbrögð það aðhyllist – ef einhver. Ég trúi því vissulega að sannkristin manneskja hafi þetta til að bera. En ég er jafnsannfærður um að góðir múslimir, góðir hindúar, góðir búddistar og góðir trúleysingjar – allt gott fólk – auðsýni dag hvern góðmennsku, hjartahlýju og náungakærleik. Ég trúi því reyndar að það sé einmitt það sem geri það gott fólk.
Þess vegna fer það ósegjanlega í taugarnar á mér þegar prestar og sjálfskipaðir boðberar kristindómsins bera hann á borð innblásnir af siðferðilegu mikilmennskubrjálæði. Þegar talað er niður til annarra, hæðst að og gert lítið úr öðrum trúarbrögðum eða lífsskoðunum og látið er í veðri vaka að fólk sé siðferðislega á æðra plani en annað fólk fyrir það eitt að vera nafnkristið. Við skulum hafa það hugfast að miskunnsami Samverjinn var ekki kristinn. Samt er hann hin stóra fyrirmynd kristinna manna um rétta breytni.
Þetta siðferðilega yfirlæti þeirra, sem hve einarðast álíta sjálfa sig sannkristna, fer í taugarnar af mér af þremur meginástæðum.
Í fyrsta lagi felst, að mínu mati, þversögn í slíkri afstöðu. Með því einu að benda á annan og segja „Ég er á siðferðilega hærra plani en þú“ er viðkomandi búinn að setja sjálfan sig skör neðar en þann sem bent er á á hinu siðferðilega plani.
Í öðru lagi er slík framkoma einfaldlega ekki kristileg. Hún einkennist ekki af þeirri auðmýkt og hógværð sem einkenna ætti framgöngu kristinna manna. Ég vona svo sannarlega að það geri okkur betri að vera kristið fólk. En um leið og við erum farin að telja okkur trú um að það geri okkur ekki bara betri, heldur betri en annað fólk, þá erum við búin að taka okkur stöðu faríseans í musterinu sem bað: „Guð, ég þakka þér, að ég er ekki eins og aðrir menn, ræningjar, ranglátir, hórkarlar eða þá eins og þessi tollheimtumaður.“
Í þriðja lagi tel ég slíka framkomu fæla fólk í burtu. Ef við viljum að trúin bjóði ekki bara vænisýki og gremju heldur frið og sátt við Guð og menn, þá verður framganga okkar að einkennast af því. Göngum því fram í hógværð og auðmýkt. Eflum friðinn og réttum fram sáttahönd, ekki steyttan hnefa.
Bakþankar í Fréttablaðinu 8. 1. 2011

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Trúlaus maður (atheiist,oft hugsandi fólk ) getur haft siðferðikennd og samvisku í góðu lagi ,það hef ég rekið mig á.Eru flestir almennt heiðarlegir og ábyggilegir.
Ég var í AA samtökunum sem eru trúarleg og hef sótt samkomur í trúfélag .Það færir mér enga siðferðilega yfirburði en gerir mér gott.Í trúarheiminum er oft fólk innan um með persónubresti og ber að hafa það í huga. Guðstrúin og trúin á Jesú hefur samt blessað líf margra.