mánudagur, október 18, 2010

Hvatt til dáða

Viðbrögð við miður æskilegri og óþægilega sýnilegri nýbreytni í íslenskri stjórnmálaflóru 4. október 2010.

Landið út við ysta sæ

oft er súrt að gista,

en bölvað ástand bætir æ

að berja nýnasista.

Unun veitir, ætla ég,

sem alldjúpt muni rista

og fráleitt vera leiðinleg,

að lemja nýnasista.

Svona lagað svínarí

er svívirða að vista.

Byrjum þegar bernsku í

að banka nýnasista

Hýða má og hæða hvasst,

höggva í spað og kvista,

bæði klípa, bíta fast

og buffa nýnasista.

Allir þeir sem yndi sjá

í ýmsum fögrum listum

láti ekki líða hjá

að lumbra á nýnasistum.

Íslendingur, af þér slen

ættir þú að hrista.

Engin list er ljúfari en

að lemstra nýnasista.

Frá því merlar morgundögg

uns myrkva fer og frysta

látum dynja hnefahögg

á hausum nýnasista.

Svo við getum sofið rótt,

sæl við hafið ysta,

verum dugleg dag og nótt

að dangla í nýnasista

Í víti senda vonda skal

veginn allra stysta.

Ég mana því hvern mætan hal

að mauka nýnasista.

Þar til bera burtu þarf

bjánana í kistum,

það sé landans líf og starf

að lúskra á nýnasistum.

4 ummæli:

Halli sagði...
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
Unknown sagði...

Ertu að hvetja til ofbeldis davíð ?? ertu rasisti ??

Davíð Þór sagði...

Er boðskapurinn ekki augljós? Hengum alla öfgamenn!!!

Unknown sagði...

Af hverju er þá ekki búið að hengja þig?