þriðjudagur, apríl 15, 2008

2020


Árið er 2020. Ég átti erindi austur á land og er á leiðinni heim til höfuðborgarinnar með flugi. Ég geng frá borði í Vatnsmýrinni um rana beint inn í nýlega, glæsilega flugstöð sem af einhverjum ástæðum gengur ekki undir nafninu flugstöð heldur „samgöngumiðstöð“. Það er vegna þess að héðan er hægt að taka strætó og leigubíl, rétt eins og það gildi ekki um flugstöðvar almennt.
Það er vissulega lúxus að hafa flugstöð svona nálægt gamla miðbænum. Hún er í göngufjarlægð frá honum – ef gengið er þvert yfir flugbrautina. Vegna staðsetningar stöðvarinnar austan fluvallarins tekur fólk hins vegar undantekningarlaust leigubíl niður í gamla miðbæinn. Mun fleiri eiga þó auðvitað erindi í nýju miðborgina í Smáranum. Þannig að í raun er flugstöðin ekki í göngufjarlægð frá neinu nema Hótel Loftleiðum. Flugvöllurinn er reyndar í útjaðri byggðarinnar, þungamiðja hennar er í Mjóddinni.
Á Reykjavíkurflugvelli er fólk á fleygiferð, enda er hann stór vinnustaður. Hér er flugþjónusta fyrir alls konar hópa ferðafólks og kaupsýslumanna, flugskólar og einkaþotuskýli. Fyrir rúmum áratug þótti nefnilega ljóst að hvergi á láglendi á suðvesturhorni landsins væri hægt að æfa snertilendingar nema einmitt í hjarta miðborgarinnar.
Ég sest upp í bílinn minn og keyri heim til mín, upp á Kjalarnes eða í Úlfarsárdal eða Kjós, sem er eini staðurinn á höfuðborgarsvæðinu þar sem hægt var að koma fyrir nýrri byggð. Ferðin tekur óratíma, enda umferðin þung og aðeins um tvær samgönguæðar að ræða milli vesturhluta borgarinnar og austurhluta hennar. Lega flugvallarins kemur í veg fyrir fleiri. Umferðin er líka þung vegna þess að dreifing byggðarinnar upp á heiðarnar umhverfis borgarlandið lengir allar vegalendir borgarbúa á milli heimilis, vinnu og annarrar þjónustu. Flugvallarsvæðið hefði getað orðið heimili 15000 Reykvíkinga.
Af hverju er þetta svona? Jú, skipulag borgarinnar tók ekki mið af þörfum borgarbúa heldur þægindum flugkennara og kröfum þeirra 20% landsmanna sem eru háðir flugsamgöngum með ferðir til höfuðborgarinnar. Á sama tíma og annars staðar í álfunni var unnið að því að minnka ægivald einkabílsins í miðborgunum var ákveðið að í miðborg Reykjavíkur skyldi fólkið víkja fyrir einkaþotunni.
Bakþankar í Fréttablaðinu 13. 4. 2008

4 ummæli:

Kristín sagði...

Bravó! Þarna hittirðu í mark.

Nafnlaus sagði...

Amen!

Nafnlaus sagði...

Mér líst mjög vel á þessa framtíðarsýn varðandi flugvallarmálin. En ég held að þú eigir eftir að setjast að í Viðey en ekki í Kjós.
Í eyjunum við Sundin eru næg byggingarlönd og með því að fara með Sundabraut út í eyjarnar í stað þess að fara í göng undir sjó yrðu slegnar nokkrar flugur í einu höggi.
En það yrði að friða hluta Viðeyjar, landið í kringum Viðeyjarstofu.
Höfuðborgin okkar myndi eignast nokkurs konar Manhattan.
Heldur þú að miðbær Reykjavíkur verði í Smáranum í Kópavogi?
kv.
Rannveig Árna

Nafnlaus sagði...

Sæll Davíð, frábær pistill. Það væri fróðlegt að vita hlutfallið milli fjölda íslendinga sem nota Keflavíkurflugvöll m.v. fjölda þeirra sem nota Reykjavíkurflugvöll. Líka hversu stórt hlutfall þeirra sem nota Rvk.völl fari á hótelið og til Kef. morguninn eftir.

Mig langar að bauna smá íslenskuspurningu á þig. Við hjónin erum ósammála um hvort réttara er að segja "mér var boðið í afmælið" eða "ég var boðin(n) í afmælið". Hefurðu skoðun á því?

kv.
Elías