þriðjudagur, mars 04, 2008

Sókn í Vatnsmýri


Þær hugmyndir um framtíðarskipulag Vatnsmýrarinnar sem nú liggja fyrir eru dásamlegar. Ég öfunda afkomendur mína af því að fá að njóta þeirrar byggðar sem þar mun rísa, því sjálfum mun mér varla endast aldur til að sjá hana fullkláraða. Þarna verður blönduð miðborgarbyggð, svipuð eftirsóttustu hverfunum í Reykjavík um þessar mundir, Þingholtunum og Vesturbænum. Ég varð ótrúlega feginn að sjá að skipulagið gerði ekki ráð fyrir eintómum botnlöngum út frá steingeldum verslunar- og þjónustukjarna, heldur eðlilegri framlengingu af byggðinni sem fyrir er í nágrenninu. Gert er ráð fyrir uppbyggingu háskóla, útivistarsvæðum, blandaði íbúðabyggð, verslunum, leikskólum, grunnskólum og framhaldsskóla. Þarna verður allt til alls. Nema kirkja.
Nú hef ég í sjálfu sér engar áhyggjur af því að á venjulegum sunnudegi verði ekki pláss fyrir kirkjurækna Vatnsmýringa framtíðarinnar í kirkjunum í nágrenninu, Neskirkju, Hallgrímskirkju og Dómkirkjunni. Í Vatnsmýri er hins vegar gert ráð fyrir 10 – 15 þúsund manna íbúabyggð. Það er um það bil tvöfaldur íbúafjöldi meðalsóknar í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra. Af þessu fólki má reikna með að 8 – 12 þúsund, varlega áætlað, vilji skíra börnin sín og ferma, gifta sig í kirkju og hljóta kirkjulega útför. Af eðlilegum ástæðum eru því takmörk sett hve margar athafnir geta farið fram í einni kirkju á einum degi. Þrátt fyrir að þessi tölfræði sé fyrirliggjandi gerir engin tillagnanna ráð fyrir því að þessi þjónusta verði í boði í hverfinu. Jafnvel tillagan, þar sem búið er að ákveða hvar McDonald's og IKEA eiga að vera, gerir ekki ráð fyrir kirkju.
Freistandi væri að draga af þessu einhverjar ályktanir um stöðu kirkjunnar í nútímasamfélagi eða geistlegar áherslur skipulagsfræðinga, en ég ætla láta það ógert. Ég held að þetta sé bara vanhugsað. Allir hljóta að sjá, óháð sinni persónulegu trúarafstöðu, að óskað verður eftir þessari þjónustu í hverfinu. Af þeim sökum efast ég ekki um að í Vatnsmýri rísi kirkja með fjölgun íbúanna. Hennar verður einfaldlega þörf. Ég held bara að það væri sniðugra að skipulagið gerði ráð fyrir því frá byrjun.
Bakþankar í Fréttablaðinu 2. 3. 2008

3 ummæli:

Kristín sagði...

Hvernig væri nú að taka þetta inn í 21. öldina með stæl og stinga upp á fjölmenningarlegu trúarhofi sem gegndi hlutverki fyrir alla hópana, hver sem trú þeirra eða vantrú væri?

Nafnlaus sagði...

Tjah, eins og staðan er í Hallgrímskirkju með fermingar er nóg pláss fyrir allt þetta hverfi, það eru bara 2 á ári núna. Líka sjaldan jarðarfarir, helst að brúðkaupin yrðu erfið að sumri...

Nafnlaus sagði...

Þú verður bara að ganga aftur ti þess að sjá Vatnsmýrarbyggðina eftir 70 ár.