miðvikudagur, apríl 05, 2006

Í hund og kött

Listar yfir jákvæð og neikvæð orð, orðtök og orðasambönd í íslenskri tungu sem tengjast hundum og köttum. "Í hund og kött" tengist báðum skepnum og telst þess vegna ekki með, sömuleiðis "alla sína hunds og kattar tíð". Hins vegar er athyglisvert að "í hund og kött" er núleg mynd orðtaksins "í hund og hrafn", sem í raun ætti að fría köttinn ábyrgð. Þessir listar eru auðvitað ekki tæmandi, ég sleppti öllu eldfornu, úreltu og útdauðu (og því sem ég gleymdi). Þeir ættu þó að gefa einhverja hugmynd um ímynd hunda annars vegar og katta hins vegar í málkennd og tungutaki þjóðarinnar og það hvor skepnan sé dulvitað hærra skrifuð hjá henni.

kettir – neikvætt:
Að fara eins og köttur í kring um heitan graut (að geta ekki komið sér að efninu)
Að fara í jólaköttinn (að fá engin föt á jólunum, jafnvel enga gjöf)
Að kaupa köttinn í sekknum (að vera snuðaður í viðskipum)
Að vera algjör kisa (að geta ekki borðað heitan mat)
Ekki upp í nös á ketti (naumt skammtað)
Kattaþvottur (lélegur þvottur, ósannfærandi hreinsun af áburði)
Köttur í bóli bjarnar (mannaskipti til hins verra)

kettir – jákvætt:
Kattarauga (glitauga, mikilvægt öryggistæki)
Kattliðugur (mjög liðugur)
Kattþrifinn (mjög þrifinn)

hundar – neikvætt:
Að fara í hundana (að fara illa, vera sóað)
Að setja upp hundshaus (að fara í fýlu)
Að taka einhverju eins og hverju öðru hundsbiti (verða fyrir tjóni)
Að vera eins og snúið roð í hund (að vera önugur, illur viðureignar)
Á hundavaði (illa og flausturslega)
Eins og halaklipptur hundur (mjög sneyptur)
Éttu hund! (hundur kemur hér í stað skíts)
Hundalíf (líf við bág kjör)
Hundalógík (ómerkileg röksemdafærsla)
Hundasund (ómerkilegur sundstíll)
Hundingi (skammaryrði)
Hundheiðinn (trúlaus)
Hundleiðinlegur (afar leiðinlegur)
Hundseyra (slæm meðferð á bók (ekki mjög þekkt))
Hundtryggur (gagnrýnislaus tryggð sem krefst algers undirlægjuháttar)
Hundur (lágt spil)
Hundur (um mann)
Rauðir hundar (smitandi veirusjúkdómur)

hundar – jákvætt:
Hundaheppni (fádæma lán)

úrslit:
Kettir (-7 +3 = -4)
Hundar (-18 +1 = -17)

Kettir bursta hunda!

8 ummæli:

Rustakusa sagði...

jeeeh....kettir bursta hunda ;-)

Þorbjörn sagði...

Þetta er nú meiri hundalógíkin...

Davíð Þór sagði...

Hundalógík! Gleymdi henni! Öppdeita færsluna strax.

Sigga sagði...

Þar fór góður biti í hundskjaft!

Nafnlaus sagði...

Æ, vertu nú ekki með þessar hundakúnstir hundaklyfberinn þinn þó ég bjóði þér hundasúrur. Það er óþarfi að vera svona hundapurkulegur! Níd æ sei mor?

Örn Úlfar sagði...

Málið flækist svo væntanlega ef hvolpar og kettlingar fá að vera með, að ekki sé minnst á tíkur og syni þeirra. Enga mélkisuhegðun takk!

Rustakusa sagði...

Nú farið þið alveg með hann... hann verður að öppdeita fram að jólum..með þessu áframhaldi ;-)

Nafnlaus sagði...

Kattaþvottur (lélegur þvottur, ósannfærandi hreinsun af áburði)

Kattþrifinn (mjög þrifinn)

Hmm... þarna finnst mér vera skekkja.
Á mínu heimili er það kallað kattarþvottur þegar maður sleikir á sér fingurinn og nuddar t.d. súkkulaði af krakkanum sínum.
En ég hef ekki áður heyrt það um illa þvegna hluti.

Að taka einhverju eins og hverju öðru hundsbiti (verða fyrir tjóni)
Og þetta þýðir að taka hlutunum með jafnaðargeði hefði ég haldið.

Annars skemmtileg samantekt... og já, kettir bursta hunda :-)